144. löggjafarþing — 71. fundur, 26. feb. 2015.
raforkulög.
305. mál
Forseti brást vel við þeim ábendingum eða óskum um að gera hér hlé meðan menn væru að átta sig á stöðu málsins. Þau mál skýrast ekki fyrr en kl. 9. Forseti telur að það sé mjög sanngjarnt sem hann leggur hér til og vill ekki að hv. þingmenn gangi nú á lagið með því að reyna að tefja tímann til kl. 9 með umræðum um fundarstjórn forseta þegar forseti brást svo vel við óskum hv. þingmanna um að gera þetta örstutta hlé.