Hagavatnsvirkjun.
Virðulegur forseti. Það eru að sjálfsögðu útúrsnúningar sem er ekki vert að svara hvernig hv. þingmaður kýs að túlka orð mín áðan. Það má heldur ekki gleyma því að sumarið 2013 fól þáverandi umhverfisráðherra verkefnisstjórninni að skoða tiltekna virkjunarkosti, þar á meðal Hagavatn. Ég hef gagnrýnt verkefnisstjórnina ítrekað fyrir að sinna ekki þeim tilmælum og þeim fyrirmælum sem henni voru falin og hún lét hjá líða að skoða til dæmis þennan virkjunarkost. Hvað það varðar sem hv. þingmaður nefnir, að gera þurfi frekari rannsóknir á þeim virkjunarkosti og vísar þar í umsagnir, þá er það einmitt það sem gerist, það verður ekki farið í þá virkjun án þess að hún fari í gegnum umhverfismat og þá eru þau atriði sem hv. þingmaður nefnir að sjálfsögðu til meðhöndlunar. Það er ekki þannig að um leið og kostur er kominn í — (RM: Umhverfismatið var aldrei …) Ef það er þannig (Forseti hringir.) að virkjunarkostur er kominn í nýtingarflokk þýðir það ekki að hafist verði handa daginn eftir við að virkja. Að sjálfsögðu þarf þessi kostur, eins og allir aðrir, að fara í gegnum lögformlegt ferli.