144. löggjafarþing — 84. fundur,  24. mars 2015.

alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.

579. mál
[19:15]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, þetta er dálítið furðuleg þróun. Maður spyr sig bara: Hvað á að gera í þessu? Hvert erum við að fara með þessa þróun og hvernig ætlum við að stoppa hana af í raun og veru? Ég spyr hv. þingmann hvort hún lumi á einhverjum ráðum í þessu máli.