144. löggjafarþing — 85. fundur,  25. mars 2015.

alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.

579. mál
[17:44]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Mig langar til að spyrja hvort hv. þingmaður kannist við það að til sé eitthvert fordæmi fyrir þessari aðgerð í nágrannalöndum okkar og hvort við séum að taka þetta upp einhvers staðar annars staðar frá. Og ef svo er, hvort vitað sé hvernig það hefur gengið.