144. löggjafarþing — 85. fundur,  25. mars 2015.

alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.

579. mál
[19:51]
Horfa

utanríkisráðherra (Gunnar Bragi Sveinsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hvet hv. þingmann til að fara í gegnum síðustu breytingar fyrir þessar sem voru gerðar á þróunarsamvinnulögunum, ekki síst þegar breytingarnar urðu 2008 eða 2009. Þá fyrst var verið að færa völd til ráðherrans, þá voru völd og verkefni ráðherrans skýrð. Ég hygg að hv. þingmenn sjái ekki neitt í þá veru í þessu stutta, litla frumvarpi.