144. löggjafarþing — 86. fundur,  26. mars 2015.

samningur milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu 2015.

609. mál
[13:31]
Horfa

utanríkisráðherra (Gunnar Bragi Sveinsson) (F):

Herra forseti. Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á samningi milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2015 sem gengið var frá með bréfaskiptum í Þórshöfn og Reykjavík 6. og 20. janúar 2015.

Samningur þessi kveður á um heimildir aðila til veiða á uppsjávarfiski í lögsögu hvor annars á árinu 2015. Hann er óbreyttur frá fyrri árum að öðru leyti en því að ekki var kveðið á um heimildir færeyskra skipa til loðnuveiða í íslenskri lögsögu í samningnum frá árinu 2014 og hefur því ákvæði 1. gr. þessa samnings að geyma heimildir fyrir loðnuveiðar Færeyinga í íslenskri lögsögu fyrir vertíðina 2014/2015, sem og vertíðina 2015/2016.

Samningurinn gerir ráð fyrir gagnkvæmri heimild skipa hvors aðila til veiða á kolmunna og norsk-íslenskri síld innan lögsögu hins á árinu 2015.

Íslenskum skipum eru heimilar veiðar á allt að 1.300 lestum af makríl og 2.000 lestum af síld annarri en norsk-íslenskri innan færeyskrar lögsögu á árinu 2015.

Samningurinn tók gildi til bráðabirgða 20. janúar 2015 og mun öðlast endanlegt gildi þegar tilkynnt hefur verið um að stjórnskipulegum skilyrðum hvors lands um sig hafi verið fullnægt.

Áður en samningur þessi var gerður var á grundvelli samnings landanna frá 1976 um heimildir Færeyinga til veiða í lögsögu Íslands ákveðið að færeyskum skipum væri heimilt að veiða 5.600 lestir af botnfiski við Ísland á árinu 2015. Heildarafli þorsks verður þó ekki meiri en 1.375 lestir, heildarafli keilu ekki meiri en 750 lestir og engar veiðar eru heimilaðar á lúðu eða grálúðu.

Ég legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umræðu verði tillögu þessari vísað til hv. utanríkismálanefndar.