144. löggjafarþing — 90. fundur,  16. apr. 2015.

leyniskýrslur fyrir kröfuhafa.

[10:50]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég mundi telja eðlilegast og einfaldast í ljósi þess að einhverjir þeirra a.m.k. sem hafa skrifað þessar skýrslur hafa gefið sig fram, að þeir séu sjálfir beðnir um að afhenda skýrslurnar, (Gripið fram í.) það liggur beinast við að þeir afhendi skýrslurnar. Ef þeir eru ekki tilbúnir til þess af einhverjum sökum þá getum við reynt að leita annarra leiða til þess að þingið geti fjallað um þessi mál.