144. löggjafarþing — 90. fundur,  16. apr. 2015.

stjórn veiða á Norðaustur-Atlantshafsmakríl.

691. mál
[12:09]
Horfa

Björt Ólafsdóttir (Bf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Aðeins fyrst um hugmyndir okkar, mínar og okkar í Bjartri framtíð, um að bjóða út þessar hlutdeildir. Ég held að því þurfi að vera skipt niður. Við viljum ekki hafa þetta 100% á algjörlega opnum markaði, ekki enn sem komið er, og þá tala ég fyrir sjálfa mig.

Að sjálfsögðu er mikilvægt að skipta því eitthvað upp. Það eru byggðasjónarmið þarna inni, það eru mismunandi útgerðaraðilar, mismunandi útgerðarform sem þarf að hugsa út í.

Hvað varðar leigukvóta eða þá leið sem hv. þingmaður nefndi hef ég ekki skoðað hana nógu vel en hún er sett fram, held ég, til þess að skipta hlutanum upp á einhvern ákveðinn hátt.

Hvað varðar 10 kr. (Forseti hringir.) þá kemst ég ekki í að fara yfir það.