144. löggjafarþing — 90. fundur,  16. apr. 2015.

stjórn veiða á Norðaustur-Atlantshafsmakríl.

691. mál
[16:56]
Horfa

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég verð nú að játa að ég treysti mér ekki til að gefa neitt viti borið svar í þeim efnum. Ég hef þessar stærðir ekki þannig í kollinum eða hef ekki það góðan skilning á málinu að ég treysti mér til að svara til um það. En ég ítreka þá tillögu, sem ég styð hér, í ljósi þeirra deilna sem eru um þetta kerfi og þar með um þetta frumvarp, að við gefum okkur betri tíma, að við förum að ráðum. hv. þm. Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur og veitum þessar heimildir til eins árs en ekki lengur.