144. löggjafarþing — 93. fundur,  21. apr. 2015.

störf þingsins.

[13:41]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Til stendur að hefja hinseginfræðslu í Hafnarfjarðarbæ og er það vel. Viðbrögð Gylfa nokkurs Ægissonar, hæstv. tónlistarmanns, voru á þá leið að koma á fót facebook-síðu til þess að mótmæla þessum áætlunum en síða hans nefndist hinu kaldhæðnislega nafni Barnaskjól.

Skoðun Gylfa Ægissonar, hæstv. tónlistarmanns, á samkynhneigð er orðin þjóðþekkt enda ein óvinsælasta skoðunin á Íslandi um þessar mundir og með réttu. En þrátt fyrir fullkominn ósigur hans í umræðunni nú sem fyrr er þó strax komin fram krafan um að tilkynna síðu hans sem hatursáróður og þar með fá henni lokað. Halda má því til haga að það er ákvörðun facebook, ekki okkar. En það er þó fullt tilefni til að mótmæla slíkum kröfum. Menn hætta ekki að hafa skoðanir með því að þeim sé bannað að tjá þær. Þvert á móti sannfærir þöggun fólk um það eitt að samfélagið sé rökþrota, að fólk sem berjist gegn fordómum þori ekki einu sinni að verja stuðning sinn við eitthvað jafn sjálfsagt og hinseginfræðslu og kynfrelsi og umburðarlyndi.

Virðulegi forseti. Vondar skoðanir verða að heyrast til þess að hægt sé að kljást við þær. Með því að þagga niður í óvinsælum skoðunum lokum við augunum fyrir vandanum og skiljum hann eftir jafn óútkljáðan og áður. Börn fordómafulls fólks munu halda áfram að heyra slíkum skoðunum varpað fram á heimilinu, jafnvel þó að tekið sé fyrir þær á svæðum eins og facebook. Munurinn er sá að á heimilinu heyrast ekki einnig viðbrögð samfélagsins.

Kynfrelsi, hinseginfræðsla og umburðarlyndi eru sterkari málstaðir en svo að þeir krefjist skoðanakúgunar til að bera sigur af hólmi. Allra versti óvinur fordómanna er opin og frjáls umræða.

Að lokum legg ég til að fundir fastanefnda Alþingis verði að jafnaði opnir.