144. löggjafarþing — 97. fundur,  28. apr. 2015.

Varamenn taka þingsæti.

[13:32]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá 9. þm. Suðurk., Vilhjálmi Árnasyni, um að hann geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Geir Jón Þórisson.

Geir Jón Þórisson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.