144. löggjafarþing — 97. fundur,  28. apr. 2015.

störf þingsins.

[13:42]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég vil gera að umtalsefni það bréf sem hæstv. innanríkisráðherra Ólöf Nordal sendi til Reykjavíkurborgar þann 20. apríl sl. þar sem gerð var sú athugasemd að það leyfi sem Reykjavíkurborg hefur veitt til framkvæmda á svæði Valsmanna sé í raun ólöglegt, lögleysa, virðulegur forseti, því að í bréfinu kemur fram, með leyfi forseta:

„Samkvæmt gildandi skipulagsreglum sem samþykktar voru af samgöngumálaráðherra og birtar í Lögbirtingablaðinu 7. ágúst 2009 eru hindrunarfletir á aðflugslínum af flugbrautum vallarins, þar með talin flugbraut 6-24. Sú uppbygging sem fyrirhuguð er á svæði Valsmanna er innan þess svæðis sem skipulagsreglur Reykjavíkur ná til og því óheimilt að reisa mannvirki sem ná upp fyrir þá fleti eins og segir til um í 2. mgr. 59. gr. laga nr. 60/1998, um loftferðir.“

Það er ekki einasta að Reykjavíkurborg er komin langt fram úr þeim heimildum sem hún hefur varðandi þessi mál heldur liggur Reykjavíkurborg svo á að hefja þarna framkvæmdir og útrýma neyðarbrautinni að hún tekur ekki tillit til þess að Samgöngustofa hefur nú til umfjöllunar möguleg áhrif á lokun flugbrautarinnar sem kölluð er neyðarbraut. Ég hef áður gagnrýnt að þar er á ferðinni mikið stjórnsýsluklúður vegna þess að síðan þetta mál fór af stað núna í seinasta sinn hefur það tekið 16 mánuði og ég minni á málshraðareglu stjórnsýsluréttar. Jafnframt fer Reykjavíkurborg fram úr því samkomulagi sem var búið að gera varðandi hina svokölluðu Rögnunefnd, að hafast ekkert að á Hlíðarenda og í Vatnsmýrinni fyrr en einhver niðurstaða væri komin í starf nefndarinnar.

Ég lít þetta mjög alvarlegum augum, virðulegi forseti. Þarna gengur Reykjavíkurborg (Forseti hringir.) beinlínis í berhögg við lög.