144. löggjafarþing — 98. fundur,  29. apr. 2015.

störf þingsins.

[15:11]
Horfa

Elsa Lára Arnardóttir (F):

Hæstv. forseti. Í gær fór fram 1. umr. um tvö af fjórum húsnæðisfrumvörpum hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra Eyglóar Harðardóttur. Nú eru frumvörpin er varða húsaleigulög og húsnæðissamvinnufélög komin til velferðarnefndar. Hv. þingmaður Samfylkingarinnar, Kristján L. Möller, talaði um hversu langur tími hefur liðið frá því að verkefnisstjórn um framtíðarskipan húsnæðismála skilaði af sér skýrslu sem umrædd frumvörp eru byggð á, en vert er að geta þess að nú er rétt tæpt ár frá því að verkefnisstjórnin skilaði af sér. Ég get verið hjartanlega sammála hv. þm. Kristjáni L. Möller um að umrædd frumvörp hefðu gjarnan mátt koma fyrr inn í þingið. Til að gæta allrar sanngirni í umræðunni verður að koma fram að mikið samráð var innan velferðarráðuneytisins við vinnslu frumvarpanna. Þar komu fram mismunandi sjónarhorn frá mörgum aðilum sem horfa þurfti til.

Vegna þessara orða hv. þingmanns langar mig að rifja upp nokkrar staðreyndir, svona til að hafa hlutina uppi á borðinu. Þingmenn Samfylkingarinnar voru ráðherrar í félagsmálaráðuneytinu, síðar velferðarráðuneytinu, árin 2007, 2008, 2009, 2010, 2011, 2012 og fram að kosningum árið 2013. Á því kjörtímabili sem nú er hefur hæstv. ráðherra Eygló Harðardóttir verið félags- og húsnæðismálaráðherra og þegar hún kom inn í ráðuneytið og byrjaði að vinna að frumvörpum er varða bættan leigumarkaði kom fram að það voru ekki til nein frumvörp er varða bættan leigumarkað frá þeim árum sem upp voru talin áðan, ekki einu sinni drög að frumvörpum þessa efnis. Samt sem áður fór viðamikil og góð vinna fram á síðasta kjörtímabili í nefndum og skýrsluskrifum er varða þessa mikilvægu þætti, en hugmyndirnar komu aldrei fram í frumvörpum.

Síðasta kjörtímabil var fjögur ár eins og flest önnur kjörtímabil hingað til. Að hv. þingmaður gagnrýni núverandi ríkisstjórn fyrir seinagang í þessum málum kemur úr hörðustu átt, það er eins og að kasta steini úr glerhúsi.