144. löggjafarþing — 105. fundur,  12. maí 2015.

um fundarstjórn.

[19:32]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Eftir því sem forseti kemst næst og hafði tök á að fylgjast með umræðunni þá var hæstv. umhverfisráðherra viðstödd umræðuna, en forseti mun gera ráðstafanir til þess að gera hæstv. ráðherra viðvart um að nærveru hennar sé óskað og gerum við gangskör að því.