144. löggjafarþing — 105. fundur,  12. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[23:51]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti er svo sem ekki vanur því að fagna sérstaklega frammíköllum en hann leit svo á að í frammíköllum væri hvatt til þess að menn færu að þeim tilmælum forseta að gæta sín á því að fara ekki í efnislegar umræður undir dagskrárliðnum fundarstjórn forseta.