144. löggjafarþing — 106. fundur,  13. maí 2015.

umræðuefni dagsins.

[16:47]
Horfa

Forseti (Kristján L. Möller):

Forseti minnir þingmenn á að þeir hafa aðeins eina mínútu til að ræða um fundarstjórn forseta. Forseti hefur áður getið um það að honum er mjög illa við að þurfa að berja ótt og títt í bjölluna af tillitssemi við þá sem eru að hlusta heima hjá sér. Ég bið því þingmenn að virða tímann.