144. löggjafarþing — 106. fundur,  13. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[18:05]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti mun sjá til þess að hv. formanni atvinnuveganefndar verði gert viðvart en vill þó vekja athygli á því að hér eru í húsi fulltrúar úr atvinnuveganefnd, frá meiri hluta atvinnuveganefndar, og hér situr sömuleiðis í salnum hæstv. umhverfisráðherra.