áframhald umræðu um rammaáætlun.
Forseti. Ég mótmæli dagskrá þingsins í dag. Ég mótmæli þessari forgangsröðun, ég mótmæli því að forseti setji í óþökk þingflokksformanna hér mál á dagskrá sem er stríðsyfirlýsing á svo viðkvæmum tímum þar sem stórir hópar í samfélaginu hafa fundið sig knúna til að fara og nýta sér verkfallsréttinn. Það er neyðarástand á Landspítalanum, það er neyðarástand víða um land. Og í staðinn fyrir að við finnum tíma til að finna einhverjar leiðir sem við getum veitt aðkomu að kjarabaráttunni, í gegnum skattleysismörk eða eitthvað annað, erum við hér að karpa um eitthvað sem á ekki að karpa um því að það er búið að setja ramma og ramminn skal standa, forseti.