144. löggjafarþing — 108. fundur,  19. maí 2015.

dagskrártillaga.

[18:57]
Horfa

Forseti (Valgerður Gunnarsdóttir):

Forseta hefur borist eftirfarandi dagskrártillaga og eftirfarandi bréf:

„Við undirrituð gerum það að tillögu okkar, í samræmi við 1. mgr. 77. gr þingskapalaga, að dagskrá næsta fundar verði svohljóðandi:

1. Störf þingsins.

2. Sérstök umræða, húsnæðismál. Málshefjandi er Árni Páll Árnason og til andsvara verður Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra.

3. Staðan á vinnumarkaði, munnleg skýrsla forsætisráðherra.

4. Raforkulög, kerfisáætlun, EES-reglur, stjórnarfrumvarp iðnaðar- og viðskiptaráðherra, 305. mál, þskj. 1005, nefndarálit 1091 og 1226, breytingartillaga 1092 og 1227, 3. umr.

5. Stefna stjórnvalda um lagningu raflína, stjórnartillaga iðnaðar- og viðskiptaráðherra, 321. mál, þskj. 392, nefndarálit 973 og 986, framhaldsnefndarálit 1228, framhald síðari umr.

Við óskum eftir því að þessi tillaga verði borin upp til afgreiðslu í samræmi við áðurnefnda grein þingskapa.“

Undir þetta bréf rita Jón Þór Ólafsson, Katrín Júlíusdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Björt Ólafsdóttir.