144. löggjafarþing — 109. fundur,  20. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[17:23]
Horfa

Þórunn Egilsdóttir (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir athugasemdina, þ.e. andsvarið.

Umhverfisráðuneytið gaf út álit en ekki úrskurð. Það að meiri hluti nefndarinnar bætti við þessum kostum byggjum við á því að sérfræðingar hafa fjallað um það í 2. áfanga og 3. áfanga. Vissulega bara Þjórsá, um kostina þar, og í 3. áfanga en í 2. áfanga var það Skrokkalda.