144. löggjafarþing — 110. fundur,  21. maí 2015.

vísun skýrslna Ríkisendurskoðunar til nefndar.

[10:02]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Með bréfi dagsettu 18. maí hefur forseti óskað eftir því, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um verðlagsnefnd búvara og ráðgjafarnefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara og skýrslu Ríkisendurskoðunar um rekstur og starfsemi hjúkrunarheimila 2008–2010.