144. löggjafarþing — 110. fundur,  21. maí 2015.

um fundarstjórn.

[12:42]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Það skal ekki standa á forseta að reyna að leiða menn saman til þvílíkrar niðurstöðu og lausnar. Forseta er hins vegar ljóst að þetta er erfitt og snúið mál þar sem stríðar skoðanir eru uppi og forseti hefur leitast við að finna leiðir í þeim efnum að sætta ólík sjónarmið um einhverja lausn sem gæti skilað okkur áfram í þingstörfunum. Það hefur hins vegar ekki tekist.