áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Hæstv. forseti. Ef hv. þingmenn telja að einhver lög séu óskýr hlýtur að liggja beinast við að leggja fram tillögu til breytingar á þeim lögum og byrja á þeim endanum en ekki að koma með tillöguflutning inn í þingið þar sem aðeins ein umræða er eftir. Þá er náttúrlega verið að byrja alveg á kolröngum enda, ég vil beina því til hv. þm. Páls Jóhanns Pálssonar.
Ég kvaddi mér hljóðs til að taka undir með hv. þm. Svandísi Svavarsdóttur því að ég held að það sé alveg nauðsynlegt að við höfum hér lengda umræðu á morgun um þá menntastefnu sem hæstv. menntamálaráðherra virðist vera að kynna alls staðar annars staðar en hér á Alþingi þar sem umræðan um hana á að fara fram. Þess vegna tek ég undir það að við þurfum lengda umræðu um það mál.