144. löggjafarþing — 111. fundur,  22. maí 2015.

breyting á starfsáætlun.

[14:08]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti vill árétta það sem kom fram í máli hans áðan, að hann telur ekki raunhæft að setja fram tilgátu um það og enn þá síður ákvörðun um þann tímaramma sem við höfum varðandi framvindu þingsins á næstunni. Til þess eru einfaldlega of margir óvissuþættir, en forseti telur að það sé verkefni hans, ekki síst, og okkar allra í rauninni að fækka þessum álitaefnum þannig að hægt sé að búa til raunhæfa tímaáætlun um störf þingsins á næstunni.