144. löggjafarþing — 111. fundur,  22. maí 2015.

fundur í atvinnuveganefnd og umræða um rammaáætlun.

[14:47]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseta er mætavel ljóst að forsendan fyrir því að hægt sé að ná utan um þetta verkefni er sú að fulltrúar þingflokkanna ræði þessi mál. Forseti er ævinlega tilbúinn að reyna að greiða fyrir því og hefur gert það, m.a. með alltíðum fundum þingflokksformanna sem forseti telur að hafi verið settir á til að reyna að skila árangri, þó að sá árangur sé ekki enn í höfn.