144. löggjafarþing — 111. fundur, 22. maí 2015.
fundur í atvinnuveganefnd og umræða um rammaáætlun.
Í ljósi þeirra upplýsinga sem hv. þingmaður var að bera okkur um fundinn vill forseti vekja athygli á því að á fundi forsætisnefndar og þingflokksformanna greindi forseti frá því að ætlun hans væri að hefja fundinn síðar á þriðjudag, ekki klukkan 10 um morguninn, þannig að meðal annars gæti skapast rými til nefndastarfa án þess að forseti ætli að fara að ráðslaga um það. Forseti vildi vekja á þeim upplýsingum.