144. löggjafarþing — 111. fundur, 22. maí 2015.
fundur í atvinnuveganefnd og umræða um rammaáætlun.
Hv. þingmanni er mætavel kunnugt um að það er hvorki hlutverk forseta að boða til funda í einstökum þingnefndum né ákveða tímasetningu í þeim efnum. Það er á ábyrgð forustu viðkomandi þingnefnda og væntanlega gert í sem bestu samráði við nefndarmenn til að tryggja að hv. nefndarmenn geti mætt.