144. löggjafarþing — 116. fundur,  1. júní 2015.

fundur forseta með formönnum þingflokka.

[15:03]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Hæstv. forseti. Ég tek undir með hv. þm. Svandísi Svavarsdóttur og beini því til hæstv. forseta að gert verði hlé á þingfundi á meðan fundur formanna flokka með þingforseta á sér stað. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við förum að koma dagskránni og umgjörð starfsins hér næstu daga í fastar skorður. Ég tel þess vegna mikilvægt að hlé verði gert á fundinum meðan á þessum fundi stendur. Ég vil jafnframt taka undir ósk um að gefið verði ráðrúm til að halda stuttan þingflokksfund að loknum þessum fundi því að ég tel mjög mikilvægt upp á farsælt starf í framhaldinu að allir þingmenn verði upplýstir og fái strax greinargóðar upplýsingar um það sem gerist á þessum fundi.