144. löggjafarþing — 117. fundur,  2. júní 2015.

Varamenn taka þingsæti.

[13:31]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Framsóknarflokksins um að Sigurður Ingi Jóhannsson, 1. þm. Suðurk., geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, Fjóla Hrund Björnsdóttir.

Fjóla Hrund Björnsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.