144. löggjafarþing — 119. fundur,  4. júní 2015.

verkföll í heilbrigðiskerfinu.

[10:04]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Herra forseti. Ég deili áhyggjum hv. þingmanns af stöðunni og get tek undir með honum um að ástandið er víða, ekki síst í heilbrigðiskerfinu en mun víðar reyndar, mjög alvarlegt vegna verkfalls hjúkrunarfræðinga og annarra í heilbrigðisstétt.

Skellir ríkisstjórnin skollaeyrum við kröfum þessara hópa? Nei, það er ekki rétt. Við höfum lagt upp með það í þessari viðræðulotu að reynt verði að ná samningum sem svigrúm er fyrir í efnahagskerfinu og setja ekki aðrar viðræður í uppnám eða leggja of mikinn þrýsting á efnahagskerfið, að þær séu ekki úr takti við það sem er að gerast almennt í kjaramálum í landinu, á sama tíma og við viljum að það komist skýrt til skila til þessara stétta að við berum virðingu fyrir þessum störfum, við teljum þau mikilvæg og við hörmum það mjög ef menn horfa til annarra landa vegna þess að kjörin á Íslandi séu ekki nægilega góð.

Hjá hinu opinbera hækkuðu laun verulega á síðasta ári, um 7–8%, á sama tíma og verðbólgan var undir 2%, rétt um 1%. Kaupmáttur launa í opinbera geiranum stórjókst á síðasta ári en því miður virðist það ekki vera nóg. Menn koma að samningaborðinu núna og segja: Við höfum yfir síðasta áratug dregist aftur úr öðrum og nú þurfum við að fá leiðréttingu á því.

Mitt svar við þessu er: Það er ekki hægt að gera leiðréttingar tíu ár aftur í tímann. Það geta ekki allir endalaust fengið leiðréttingar gagnvart einhverjum öðrum viðmiðunarhópum. Fyrir mér er þetta fyrst og fremst til vitnis um að vinnumarkaðsmódelið sem við notum á Íslandi er gallað. Það er í raun alveg að hruni komið. Þessi ítrekuðu verkföll, þetta endalausa höfrungahlaup og þessi endalausi samanburður sem verður til þess að enginn getur samið vegna þess að hann er orðinn skotskífa fyrir þann næsta sýnir okkur (Forseti hringir.) að við þurfum að færast yfir í nýtt módel, meira í átt (Forseti hringir.) að norræna módelinu. Það verður verkefni næstu ára. En við verðum að fá niðurstöðu í (Forseti hringir.) þessa kjaradeilu, sem er í einhverju samræmi við það svigrúm sem er til staðar.