144. löggjafarþing — 126. fundur,  10. júní 2015.

orð formanns atvinnuveganefndar.

[13:19]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P):

Forseti. Það er ljóst að við erum ekki á Alþingi Íslendinga heldur á Alþingi hv. þm. Jóns Gunnarssonar. Þetta er með ólíkindum, hér erum við búin að leggja mjög mikið á okkur til að reyna að ná einhverjum ramma utan um það málefni sem er að fara á dagskrá. En þingmanninum er svo kært að vera í sviðsljósinu og hafa valdið hér inni að hann hleypir öllu í uppnám. (Gripið fram í.) Við erum á Alþingi hv. þm. Jóns Gunnarssonar en ekki á Alþingi Íslendinga og það er absúrd, forseti, hvað þessi maður ræður miklu hér inni.