144. löggjafarþing — 126. fundur,  10. júní 2015.

stöðugleikaskattur.

786. mál
[16:34]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég geri ráð fyrir að þær ráðstafanir sem gerð er grein fyrir í lögunum nægi. Þessi ríkisstjórn hefur sýnt að hún hagar málum af skynsemi þegar kemur að stjórn efnahagsmála. Ég á ekki von á að jafnvel þó að hér kæmi síðar önnur ríkisstjórn að hún mundi ganga svo langt að taka á einhvern hátt óábyrgar ákvarðanir varðandi ráðstöfun þessa fjármagns.