144. löggjafarþing — 128. fundur,  12. júní 2015.

lengd þingfundar.

[14:47]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti hyggst að sjálfsögðu eiga fund síðar í dag með þingflokksformönnum til að fara yfir þessi mál og telur þá að mál verði vonandi örlítið farin að skýrast. (GuðbH: Eigum við ekki að hafa atkvæðagreiðsluna þá?) En þegar svo stendur á að efnisleg umræða um þetta mikla og stóra mál er ekki hafin kl. 3 síðdegis er það einfaldlega mat forseta að annað væri ekki ráðlegt en óska eftir heimild til kvöldfundar.