144. löggjafarþing — 138. fundur,  29. júní 2015.

rannsókn kjörbréfs.

[10:02]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs um að Steinunn Þóra Árnadóttir, hv. 8. þm. Reykv. n., geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Því er óskað eftir því að í dag taki Andrés Ingi Jónsson sæti á Alþingi en hann er 3. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu. 1. og 2. varamaður á lista í kjördæminu hafa boðað forföll.

Að ósk forseta hefur landskjörstjórn komið saman og gefið út kjörbréf handa Andrési Inga Jónssyni. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til þess að fjalla um kjörbréfið.