144. löggjafarþing — 138. fundur,  29. júní 2015.

rannsókn kjörbréfs.

[10:03]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd kom saman til fundar í morgun og fór yfir kjörbréf Andrésar Inga Jónssonar, 3. varamanns Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Reykv. n. Engar athugasemdir komu fram við kjörbréfið og mælir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd með því einróma að kjörbréfið verði samþykkt.