144. löggjafarþing — 138. fundur,  29. júní 2015.

náttúruvernd.

751. mál
[11:10]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Sigrún Magnúsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Síst af öllu vil ég skapa hér óróa á nýjan leik. Ég taldi að við hefðum átt ágætar samræður í síðustu viku um þetta mál og ég þakka fyrir þær. Ég sagði að ef nefndin teldi að 15. nóvember gengi upp varðandi umsagnir og önnur störf sem þarf að eiga sér stað með nýtt frumvarp þá er ég alveg 100% með þeirri dagsetningu.