145. löggjafarþing — 1. fundur,  8. sept. 2015.

varamaður tekur þingsæti.

[13:04]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá þingflokksformanni Samfylkingarinnar, Helga Hjörvar, um að 5. þm. Norðvest., Guðbjartur Hannesson, geti ekki gegnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.