145. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2015.

fyrirkomulag fjárlagaumræðu.

[10:49]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Í dag verður fram haldið 1. umr. um fjárlög fyrir árið 2016 með því að fagráðherrar taka þátt í umræðunni. Í lok umræðunnar mun fjármála- og efnahagsráðherra taka til máls. Rösklega ein klukkustund er áætluð fyrir hvern ráðherra og umræður um málaflokk hans.

Röð ráðherranna verður: innanríkisráðherra, utanríkisráðherra, umhverfis- og auðlindaráðherra, heilbrigðisráðherra, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra. Mun fjármála- og efnahagsráðherra svo ljúka umræðunni síðar í dag og málið gengur til fjárlaganefndar að því loknu.

Nú hefst umræðan. Ráðherrar hafa sex mínútur í fyrsta sinn og síðan tvær mínútur hverju sinni. Þingmenn hafa þrjár mínútur í fyrra sinn og tvær mínútur í seinna sinn. Andsvör eru ekki leyfð.