145. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2015.

afgreiðslutími úrskurðarnefndar um upplýsingamál.

[15:25]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Eins og getið er um í því svari sem hv. þingmaður vísar til er þar vísað á vefsíðu nefndarinnar þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um hvert mál fyrir sig og framvindu þess. Ég ítreka hins vegar það sem ég sagði áðan, eins og kom fram í svarinu er markmið þessarar nefndar að stytta afgreiðslutímann. Telji menn að þessi vinna strandi á einhvern hátt á fjárveitingum er það að sjálfsögðu eitt af því sem menn munu skoða til að bregðast við þessum langa meðferðartíma.