145. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2015.

fullgilding bókunar við samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum (OPCAT).

6. mál
[18:45]
Horfa

Flm. (Birgitta Jónsdóttir) (P):

Forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um fullgildingu valfrjálsrar bókunar við samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Um hinn svokallaða OPCAT-viðauka er að ræða. Ályktunin sem lögð er til er svohljóðandi, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd valfrjálsa bókun við samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, sem samþykkt var á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 18. desember 2002 og undirrituð fyrir Íslands hönd 23. september 2003, ásamt því að hefja án tafar undirbúning innleiðingar hennar hér á landi.“

Forseti. Samningur Sameinuðu þjóðanna um bann við pyndingum var fullgiltur af Íslands hálfu árið 1996. Með samningnum skuldbinda aðildarríki hans sig til að grípa annars vegar til ráðstafana til að framfylgja fortakslausu banni við pyndingum og annarri vanvirðandi meðferð eða refsingu og hins vegar til ráðstafana til að koma í veg fyrir að slík meðferð eigi sér stað.

Með þessari þingsályktunartillögu er lagt til að ríkisstjórninni verði falið að fullgilda valfrjálsa bókun við þennan samning. Bókunin kveður á um bæði innlent og alþjóðlegt eftirlit með stofnunum sem vista frelsissvipt fólk til að sporna gegn því að brotið sé gegn pyndingarsamningnum. Bókunin var undirrituð af hálfu Íslands árið 2003 í september af þáverandi utanríkisráðherra Íslands með fyrirvara um fullgildingu. Síðan eru liðin hvorki meira né minna en tólf ár og enn hefur samningurinn ekki verið fullgiltur og honum því ekki komið til framkvæmda hér á landi.

Í bókuninni er kveðið á um eftirlit sjálfstæðra aðila sem falið er að heimsækja reglulega stofnanir sem vista frelsissvipta einstaklinga í þeim tilgangi að koma í veg fyrir pyndingar eða að önnur grimmileg eða vanvirðandi meðferð viðgangist. Eftirlit þetta á að vera tvíþætt og efni bókunarinnar mælir fyrir um stofnun og starfsemi bæði innlendra og erlendra eftirlitsaðila og skuldbindingum aðildarríkja þar að lútandi.

Samkvæmt bókuninni er hinni alþjóðlegu nefnd falið að heimsækja með reglubundnum hætti þær stofnanir aðildarríkja sem vista frelsissvipta einstaklinga og gefa ríkjum tilmæli og ábendingar varðandi vernd gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu. Þá er nefndinni einnig falið að vera ríkjum til ráðgjafar um innlend eftirlitskerfi, stofnun þeirra og starfsemi, sem og að eiga samskipti við sjálfa eftirlitsaðila innan lands við ráðgjöf, þjálfun o.s.frv. Hið innlenda eftirlitskerfi sem aðildarríkjunum er ætlað að koma á þarf að geta framkvæmt reglulegar kannanir á meðferð og aðbúnaði frelsissviptra einstaklinga og gefið tilmæli eða ábendingar til stjórnvalda um það sem betur má fara, bæði hvað varðar framkvæmd og lagasetningu.

Í bókuninni er sérstaklega kveðið á um skyldur ríkja til að veita eftirlitsaðilum, bæði innlendum og alþjóðlegum, aðgang að frelsissviptum einstaklingum og stofnunum, ótakmarkaðan aðgang að upplýsingum um fjölda frelsissviptra einstaklinga á hverri stofnun, fjölda slíkra stofnana og staðsetningu þeirra, allar upplýsingar um meðferð þeirra og aðbúnað, ótakmarkaðan aðgang að stofnunum sjálfum og möguleika á einkaviðtölum við frelsissvipta einstaklinga.

Í bókuninni er líka vikið að vernd þeirra sem eftirlitsaðilar ræða við og afla upplýsinga hjá og er óheimilt að beita þá hvers kyns refsingu eða láta þá gjalda fyrir samskipti við eftirlitsaðilana. Aðildarríkin hafa líka skyldu samkvæmt bókuninni til að taka við tilmælum og ábendingum bæði hinna innlendu og erlendu eftirlitsaðila um það sem betur má fara, bæði hvað varðar framkvæmd og lagasetningu og eiga samskipti og samráð um innleiðingu breytinga eftir atvikum.

Það sem þarf að gera í kjölfar fullgildingarinnar er annars vegar að tryggja með lögum að hin alþjóðlega undirnefnd um varnir gegn pyndingum geti sinnt því eftirliti hér á landi og njóti þeirra réttinda hérlendis sem bókunin kveður á um. Hins vegar þarf að ákveða hverjum skuli falið að sinna innlenda eftirlitinu sem bókunin kveður á um og setja um það viðeigandi ákvæði í lög. Ef okkur auðnast að fullgilda þessa bókun höfum við eitt ár frá fullgildingu til að ákveða hvernig við viljum haga innlendu eftirliti og koma því á koppinn.

Með tilliti til þess hve langur tími er liðinn frá undirritun bókunarinnar telja flutningsmenn ekki unnt að bíða lengur með fullgildinguna. Með henni skapast þá skýr tímarammi fyrir þá vinnu sem hefja þarf við að koma eftirlitinu á fót.

Flest þeirra ríkja sem við berum okkur saman við hafa nú þegar fullgilt bókunina, þar á meðal öll Norðurlöndin. Í nágrannaríkjum okkar, Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi, hefur umboðsmönnum þjóðþinganna verið falið með lögum að sinna hinu innlenda OPCAT-eftirliti. Umboðsmaður Alþingis hefur í reynd sinnt þessu eftirliti að nokkru leyti hér á landi, þó alfarið að eigin frumkvæði. Evrópunefndin gegn pyndingum lét þess hins vegar getið í nýlegri skýrslu sinni um Ísland að fram hefði komið á fundi nefndarinnar með Tryggva Gunnarssyni, umboðsmanni Alþingis, að stofnunin gæti ekki lengur sinnt reglulegu eftirliti á þessum vettvangi vegna fjárskorts og takmarkaðs mannafla. Þótt flutningsmenn tillögunnar taki ekki beina afstöðu til þess hverjum yrði falið að sjá um eftirlitið þykir þeim liggja beinast við að umboðsmanni Alþingis verði falið þetta hlutverk, með sama hætti og gert hefur verið í nágrannaríkjum okkar. Forsenda þess er að þeim auknu skyldum sem það fæli í sér fylgi aukið fjármagn.

Forseti. Eins og ég nefndi fyrr í ræðu minni var OPCAT-bókunin undirrituð fyrir Íslands hönd 23. september 2003, fyrir tólf árum. Í þeirri undirritun felst viljayfirlýsing okkar Íslendinga og því er ekki um pólitískt deiluefni að ræða. Þessi tillaga var einnig flutt á síðasta þingi, 144. þingi, og mjög jákvæð nefndarálit um hana komu frá þremur fastanefndum Alþingis. Þetta voru stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, allsherjar- og menntamálanefnd og utanríkismálanefnd. Í athugasemdum nefndar Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum frá 8. júlí 2008 lýsir nefndin áhyggjum af því að engu lögformlegu eftirliti hefur verið komið á fót til að fylgjast með stofnunum sem svipta frelsissvipta einstaklinga hérlendis og hvetur nefndin til þess að valfrjálsa bókunin verði fullgilt eins fljótt og auðið er. Í skýrslu nefndar ráðherraráðs Evrópu um pyndingar til íslenskra stjórnvalda sem kom út í mars 2013 er mælst til þess að Ísland fullgildi bókunina og komi á sjálfstæðu eftirlitskerfi. Er þetta áréttað í skýrslunni sem sérstakt forgangsatriði Síðast en ekki síst hefur Afstaða – félag fanga og annarra áhugamanna um bætt fangelsismál og betrun fanga ítrekað hvatt til þess að bókunin verði fullgilt til að tryggja megi gott og sjálfstætt eftirlit með stofnunum sem vista frelsissvipta einstaklinga.

Það kom fram ein ábending, breytingartillaga frá utanríkismálanefnd þegar málið var tekið fyrir í nefndinni á síðasta þingi og tókum við tillit til þess þegar við ákváðum að endurflytja það. Það er einlæg von mín að þetta mál verði tekið hratt fyrir í utanríkismálanefnd, en ég legg til að tillagan gangi til þeirrar nefndar einfaldlega af því að það er svo stutt síðan þessar þrjár þingnefndir voru einróma sammála um mikilvægi þess að þessi samningur yrði fullgiltur. Því vona ég að þetta verði eitt af þeim málum sem við náum að klára á næstu mánuðum.

Ég endurtek að ég legg til að þessi tillaga gangi til hv. utanríkismálanefndar.