ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2016.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Mig langar aðeins að spyrja út í efnahagsforsendurnar fyrir því sem við ræðum hér, annars vegar bandorminum og hins vegar fjárlögunum. Það er gert ráð fyrir talsvert mikilli atvinnuvegafjárfestingu næstu ár, 2015 og 2016, og síðan er gert ráð fyrir að hún detti niður. Ég hef velt því fyrir mér og mundi gjarnan vilja heyra sýn hæstv. ráðherra á það hvort mælitækin á atvinnuvegafjárfestinguna séu ekki of þröng því að þegar spurt er eftir því hvað felist fyrst og fremst í áætlunum um atvinnuvegafjárfestingu eru stórar framkvæmdir nefndar á borð við Bakka og Helguvík en kannski ekki endilega svo miklar fjárfestingar í smærri liðum eins og í ferðaþjónustu. Það er eitt sem ég mundi vilja heyra sýn hæstv. ráðherra á.
Miðað við spár dettur atvinnuvegafjárfesting niður eftir 2016 og þá vil ég líka spyrja hæstv. ráðherra: Í ljósi þess að opinber fjárfesting er tiltölulega lág á næstu árum í sögulegu samhengi, fyrirhugað er að bæta eitthvað í 2019, (Forseti hringir.) 1,5% að meðaltali, er þá ekki ráð að nýta færið og gefa verulega í opinberar fjárfestingar (Forseti hringir.) þegar við sjáum fram á að atvinnufjárfesting er að detta niður?