145. löggjafarþing — 8. fundur,  17. sept. 2015.

landsskipulagsstefna 2015--2026.

101. mál
[13:31]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Sigrún Magnúsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu 2015–2026. Tillagan er lögð fram í samræmi við ákvæði skipulagslaga, nr. 123/2010, en með þeim lögum var í fyrsta skipti sett hér á landi ákvæði um landsskipulagsstefnu. Umhverfis- og auðlindaráðherra ber að leggja fram tillögu til 12 ára.

Megintilgangur stefnunnar er að setja fram samræmda stefnu með heildstæðri sýn stjórnvalda um landnotkun sem byggist á stefnumörkun ríkisins á ýmsum sviðum. Með því móti hafa sveitarfélög landsins aðgang að stefnu ríkisvaldsins, sem varðar skipulagsgerð, á einum stað. Þá er tillögunni ætlað að samþætta áætlanir sem unnar eru á vegum stjórnvalda um samgöngur, byggðamál, náttúruvernd, orkunýtingu og aðra málaflokka sem varða landnotkun. Í landsskipulagsstefnu ber alltaf að fjalla um miðhálendi Íslands.

Gert er ráð fyrir að stjórnvöld vinni á árunum 2015–2026 að skipulagsmálum í samræmi við stefnuna. Það felur meðal annars í sér að þau taki mið af henni við gerð og breytingu skipulagsáætlana og samræmi skipulagsáætlanir landsskipulagsstefnu innan fjögurra ára frá samþykkt hennar þegar það á við.

Skipulagsstofnun hóf vinnu við gerð landsskipulagsstefnu á árinu 2013 að beiðni umhverfis- og auðlindaráðherra. Samhliða var skipuð ráðgjafarnefnd stjórnvalda og Sambands íslenskra sveitarfélaga um landsskipulagsstefnuna, sem og Skipulagsstofnunar og ráðherra, til ráðgjafar og samráðs við starfið.

Tillaga að landsskipulagsstefnu var unnin í virku samráði við sveitarfélög og samtök þeirra, opinberar stofnanir og félagasamtök. Einnig var starfræktur sérstakur samráðsvettvangur um mótun stefnunnar sem í voru fulltrúar frá sveitarfélögum og samtökum þeirra, opinberum stofnunum, fyrirtækjum sem sinna uppbyggingu og rekstri grunngerðar og samtökum á sviði atvinnuvega og náttúru- og umhverfisverndar.

Tillaga að landsskipulagsstefnu var auglýst af Skipulagsstofnun og kynnt opinberlega, auk þess sem hún var send út til umsagnar 180 aðila. Skipulagsstofnun bárust athugasemdir um tillöguna frá 73 aðilum með gagnlegum og góðum ábendingum sem sýna skýrt mikinn áhuga á þessari vinnu.

Skipulagsstofnun skilaði umhverfis- og auðlindaráðherra tillögu að landsskipulagsstefnu ásamt fylgiskjölum og greinargerð um afgreiðslu tillögunnar 12. mars síðastliðinn að loknum kynningartíma. Tillaga til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu var í kjölfarið lögð fram á síðasta löggjafarþingi en náði ekki afgreiðslu fyrir þinglok. Tillagan er því lögð hér fram í annað sinn efnislega óbreytt en með nokkrum breytingum á athugasemdum við tillöguna vegna breytinga á raforkulögum og í kjölfar niðurstaðna starfshóps um sameiginlega athugun ríkis, Reykjavíkurborgar og Icelandair Group á flugvallarkostum á höfuðborgarsvæðinu.

Tillaga þessi um landsskipulagsstefnu felur í sér fjórar meginstefnur, þ.e. stefnu um skipulag á miðhálendi Íslands, stefnu um skipulag í dreifbýli, stefnu um búsetumynstur og dreifingu byggðar og stefnu um skipulag á haf- og strandsvæðum. Stefnan er byggð upp á þann hátt að öllum viðfangsefnum hennar eru lögð til grundvallar ákveðin leiðarljós. Leiðarljósin eru þau að skipulag byggðar og landnotkunar stuðli að sjálfbærri þróun, skipulagið sé sveigjanlegt gagnvart samfélags- og umhverfisbreytingum og lífsgæðum fólks og styðji enn fremur samkeppnishæfni landsins alls og einstakra landshluta.

Undir hvert viðfangsefni tillögunnar er sett fram eitt yfirmarkmið og síðan markmið sem varða einstaka efnisþætti eða málaflokk eins og byggð, náttúruvernd, orkuvinnslu eða samgöngur. Þá er lagt til að hverju markmiði sé fylgt eftir með tilteknum aðgerðum eða leiðum. Þar er annars vegar um að ræða tilmæli og aðgerðir sem beint er til sveitarfélaga við gerð skipulagsáætlana og hins vegar ýmis verkefni sem beint er til annarra stjórnvalda.

Ég ætla nú að gera grein fyrir hinum fjóru stefnum landsskipulagsstefnunnar. Fyrst er að nefna stefnu um skipulagsmál á miðhálendinu sem er ætlað að leysa af hólmi svæðisskipulag miðhálendis Íslands 2015 og tekur til sama landsvæðis. Í stefnunni er lögð áhersla á að viðhalda meginstefnu gildandi svæðisskipulags, auk þess sem horft er til reynslunnar við framkvæmd þess. Jafnframt var tekið mið af þeim áætlunum sem fyrir hendi eru um landnotkun á miðhálendinu, svo sem áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, kerfisáætlun, samgönguáætlun og náttúruverndaráætlun.

Yfirmarkmið stefnu um skipulagsmál á miðhálendinu er að staðinn verði vörður um náttúru og landslag miðhálendisins vegna náttúruverndargildis og mikilvægis þess fyrir útivist og að uppbygging innviða á miðhálendinu taki mið af sérstöðu þess. Í tillögunni eru lagðar til nokkrar leiðir eða aðgerðir til að stuðla að framfylgd markmiða stefnu um skipulagsmál á miðhálendinu. Mikilvægt er að skipulags- og samgönguyfirvöld vinni að nánari greiningu á kostum varðandi þróun samgöngukerfis og útfærslu vega. Í tillögu að landsskipulagsstefnu er því gert ráð fyrir að sveitarfélög sem land eiga að miðhálendinu marki sér stefnu um þjóðvegi í aðalskipulagi í samráði við Vegagerðina.

Skortur er á heildstæðri yfirsýn yfir núverandi húsakost og þjónustuframboð á miðhálendinu. Því er lagt til að Skipulagsstofnun í samvinnu við Þjóðskrá Íslands og sveitarfélög sem land eiga að hálendinu hafi forgöngu um skráningu mannvirkja og þjónustu á hálendinu. Í því sambandi skal nefnt að í tillögu þessari er fylgt áfram stefnu svæðisskipulags miðhálendisins um að megináherslan verði á uppbyggingu ferðaþjónustu á jaðarsvæðum og á afmörkuðum svæðum í nánd við aðalvegi um hálendið. Áfram verða því skilgreindir fjórir flokkar ferðaþjónustustaða, þ.e. jaðarmiðstöðvar, hálendismiðstöðvar, skálasvæði og fjallasel. Auk þess er leitast við að skýra betur eðli uppbyggingar og þjónustu innan hvers einstaks flokks.

Í tillögu þessari er unnið á grundvelli þeirra meginhugmynda svæðisskipulags miðhálendisins að viðhalda skuli víðernum hálendisins. Vegna þess er lagt til að Skipulagsstofnun ásamt Umhverfisstofnun hafi forgöngu um reglulega uppfærslu á korti af umfangi og þróun víðerna á miðhálendinu.

Vegna aukins ferðamannastraums til landsins er afar mikilvægt að fyrir liggi mat á uppbyggingu ferðaþjónustumannvirkja á hálendinu. Því er lagt til að Skipulagsstofnun í samvinnu við Ferðamálastofu, Samband íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélög sem land eiga á hálendinu safni upplýsingum um þörf fyrir breyttar áherslur í mannvirkjagerð.

Á undanförnum árum hafa orðið talsverðar breytingar á landnotkun í dreifbýli samhliða breytingum í landbúnaði. Aukin áhersla er meðal annars á skógrækt og akuryrkju samhliða aukinni þekkingu og hlýnandi veðurfari. Þá hefur uppbygging ferðaþjónustu í dreifbýli aukist með aukinni útivist almennt. Því er ljóst að ýmiss konar áskoranir blasa við á komandi árum varðandi skipulag landnotkunar í dreifbýli, svo sem í landbúnaði, náttúruvernd, landgræðslu, skógrækt og ferðamennsku.

Í stefnu um skipulag í dreifbýli er gert ráð fyrir að skipulag gefi kost á fjölbreytni um nýtingu lands svo sem til ræktunar og ferðaþjónustu og útivistar í sátt við náttúru og landslag. Nánari markmið koma fram undir umfjöllunarefni um sjálfbæra byggð í dreifbýli, umhverfis- og menningargæði, sjálfbæra nýtingu landbúnaðarlands, ferðaþjónustu í sátt við náttúru og umhverfi, orkumannvirki og örugga afhendingu raforku í sátt við náttúru og umhverfi, sjálfbærar samgöngur, trygg fjarskipti og skipulag með tilliti til náttúruvár og loftslagsbreytinga.

Til þess að framfylgja stefnu um skipulag í dreifbýli er meðal annars lagt til að umhverfis- og auðlindaráðuneyti standi fyrir gerð leiðbeininga um flokkun landbúnaðarlands til þess að nota við skipulagsgerð og aðra stefnumótun um landnýtingu. Mikil þörf er fyrir slíkar leiðbeiningar í ljósi þess að margt bendir til þess að landbúnaðarframleiðsla muni aukast í framtíðinni, m.a. í ljósi aukins ferðamannastraums til landsins.

Þá er fyrirsjáanlegt að aukin eftirspurn verður eftir því að reisa vindmyllur í dreifbýli. Nýting vindorku er nýtt viðfangsefni í skipulagsmálum hérlendis sem kallar á þekkingaröflun og þekkingarmiðlun um skipulagslega nálgun og umhverfisáhrif. Er því í tillögunni lagt til að Skipulagsstofnun standi fyrir fræðslu og miðlun upplýsinga um skipulag vindorkunýtingar í samstarfi við hlutaðeigandi stofnanir.

Þriðja meginstefna landsskipulagsstefnu fjallar um stefnu um búsetumynstur og dreifingu byggðar, en hún tekur til byggðaumhverfis, einkum þéttbýlis og samspili þess við nærliggjandi vinnusóknar- og þjónustusvæði. Um er að ræða stefnu sem annars vegar fjallar um búsetumynstur í landinu í heild og hins vegar um innri gerð þéttbýlis og gæði hins byggða umhverfis.

Yfirmarkmið stefnunnar er að þróun þéttbýlis og fyrirkomulag byggðar stuðli að sjálfbærni með áherslu á gæði í hinu byggða umhverfi og markvissu og samþættu skipulagi byggða og samgangna. Nánari markmið koma fram undir umfjöllunarefni um heildstætt búsetumynstur og jafnvægi í byggðaþróun, sjálfbæru skipulagi þéttbýlis, gæði hins byggða umhverfis, samkeppnishæfum samfélögum og atvinnulífi, sjálfbærum samgöngum og tryggum fjarskiptum í sátt við umhverfið.

Ljóst er að með því að hlúa að vexti og viðgangi meginkjarna í hverjum landshluta er lagður sterkari grundvöllur fyrir fjölbreyttri þjónustu og atvinnulífi í hverju héraði sem býður upp á þau nútímalífsgæði sem við gerum kröfu um. Meðal þeirra verkefna sem tillagan gerir hér ráð fyrir er að við skipulagsgerð sveitarfélaga og gerð sóknaráætlana landshluta verði skilgreindir meginkjarnar í hverjum landshluta og vinnusóknar- og þjónustusvæði þeirra. Einnig er gert ráð fyrir að Skipulagsstofnun vinni samræmda greiningu á vinnusóknar- og þjónustusvæðum stærstu þéttbýlisstaða og kortlagningu virkra borgarsvæða í samstarfi við Byggðastofnun, innanríkisráðuneytið, Vegagerðina, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Fjórða og síðasta meginstefna í landsskipulagi tekur til skipulags á haf- og strandsvæðum. Þetta er nýtt viðfangsefni hér á landi. Skort hefur heildstæða yfirsýn yfir starfsemi á haf- og strandsvæðum við landið og því hefur verið kallað eftir heildstæðu skipulagi fyrir þau. Innleiðing skipulags hafs- og strandsvæða hér við land helst í hendur við sams konar þróun í löndunum í kringum okkur, en bæði vestan hafs og austan hafa ríki verið að innleiða slíka skipulagsgerð á síðustu árum til að stuðla að sjálfbærri nýtingu og takast á við hagsmunaárekstra um nýtingu einstakra haf- og strandsvæða.

Umfang og fjölbreytni atvinnustarfsemi á haf- og strandsvæðum Íslands hefur aukist á síðustu árum. Fyrir utan hefðbundna starfsemi og nýtingu eins og fiskveiðar, flutninga, efnistöku, siglingar, frárennsli og sæstrengi hefur ýmis önnur starfsemi rutt sér til rúms eins og fiskeldi, skelrækt, ferðatengd starfsemi og rannsóknir á orkuvinnslu. Takmörkuð yfirsýn er yfir starfsemi sem nú fer fram á haf- og strandsvæðum við landið og umfang hennar, en frumgreining á nýtingu og vernd á haf- og strandsvæðum við landið var unnin á Skipulagsstofnun árið 2012. Heildstæð öflun upplýsinga um sjótengda starfsemi og svæði sem hafa verið vernduð eða nýting þeirra á einhvern hátt takmörkuð er ein af undirstöðum skipulagsgerðar á haf- og strandsvæðum og mun styðja við sjálfbæra nýtingu auðlinda þeirra. Þá er nauðsynlegt að farið verði í frekari stefnumótun um skipulagsmál haf- og strandsvæða þar sem fjallað verði heildstætt um nýtingu og vernd þeirra, svo sem veiðar, sjávareldi, orkuvinnslu, sjóvarnir, efnistöku og vernd viðkvæmra svæða.

Umhverfis- og auðlindaráðherra skipaði árið 2014 starfshóp til að vinna að gerð lagafrumvarps um skipulag hafs og stranda. Hópnum er ætlað að móta umgjörð um stjórnsýslu skipulags haf- og strandsvæða, helstu stjórntæki við skipulagsgerðina og landfræðilega afmörkun þeirra. Miðað er við að frumvarp um skipulag haf- og strandsvæða verði lagt fram á vorþingi 2015. Stefnu um skipulag haf- og strandsvæða sem nú er sett fram tekur mið af því að lagaumgjörð skipulagsmála á haf- og strandsvæðum er enn í mótun.

Virðulegi forseti. Ég hef rakið meginefni tillögu þessarar til þingsályktunar. Ég legg til að tillögunni verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.