145. löggjafarþing — 16. fundur,  6. okt. 2015.

kosning 2. varaforseta í stað Silju Daggar Gunnarsdóttur, skv. 3. mgr. 3. gr. þingskapa, sbr. 5. mgr. 82. gr. þingskapa.

[14:09]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Eins og tilkynnt var í upphafi fundar í gær hefur borist bréf frá Silju Dögg Gunnarsdóttur, 3. þm. Suðurk. og 2. varaforseta Alþingis, um að hún segi af sér sem 2. varaforseti Alþingis. Samkvæmt þessu er á dagskrá þessa fundar kosning 2. varaforseta.

Mér hefur borist ein tilnefning, um 8. þm. Norðaust., Þórunni Egilsdóttur. Þar sem ekki eru fleiri tilnefndir en kjósa skal lýsi ég Þórunni Egilsdóttur réttkjörna sem 2. varaforseta Alþingis. Ég óska henni til hamingju með kosninguna og allra heilla og hlakka til samstarfs við hana.