145. löggjafarþing — 26. fundur,  2. nóv. 2015.

varamenn taka þingsæti.

[15:15]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Framsóknarflokksins um að Gunnar Bragi Sveinsson, 1. þm. Norðvesturkjördæmis, geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, Sigurður Páll Jónsson.

Sigurður Páll Jónsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.

Borist hefur bréf frá 5. þm. Norðvesturkjördæmis, Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur, um að hún geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu, Hörður Ríkharðsson.

Hörður Ríkharðsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.