145. löggjafarþing — 27. fundur,  3. nóv. 2015.

minning Árna Steinars Jóhannssonar.

[13:31]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Árni Steinar Jóhannsson, fyrrverandi alþingismaður, lést síðla sunnudags á dvalarheimilinu Dalbæ á Dalvík. Hann var aðeins 62 ára að aldri en hafði í nokkur missiri barist við krabbamein.

Árni Steinar Jóhannsson var fæddur á Dalvík 12. júní 1953. Foreldrar hans voru Jóhann Ásgrímsson Helgason sjómaður og kona hans, Valrós Árnadóttir verslunarmaður.

Árni Steinar lauk gagnfræðaprófi á Dalvík árið 1969. Eftir árs nám í framhaldsskóla í Bandaríkjunum fór hann í Garðyrkjuskóla ríkisins og lauk prófi þaðan árið 1974, og framhaldsnám stundaði hann í Landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn í fimm ár, til ársins 1979. Þá fluttist hann til Akureyrar og varð garðyrkjustjóri þar og síðar umhverfisstjóri til 1999 er hann var kosinn á Alþingi. Að lokinni þingmennsku var Árni Steinar um tíma sjálfstætt starfandi ráðgjafi í umhverfismálum en síðar var hann ráðinn umhverfisstjóri Fjarðabyggðar og gegndi því starfi meðan kraftar entust. Árni Steinar sat í stjórnum félaga og stofnana á sérsviði sínu og tók þátt í alþjóðlegri samvinnu garðyrkju- og skógræktarmanna. Hann sat í stjórn Rariks 2008–2014 og sem stjórnarformaður frá því í maí 2009.

Sem ungur maður var Árni Steinar Jóhannsson mjög áhugasamur um þjóðmál, hafði róttækar skoðanir og barðist ekki síst fyrir sjónarmiðum landsbyggðar og valddreifingar. Gætti þess mjög í málflutningi hans og verkum innan þings og utan. Hann leiddi lista Þjóðarflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra 1991 og náði athyglisverðum árangri, skorti lítið á til að hljóta þingsæti. Hann var síðar í framboði fyrir Alþýðubandalagið og óháða, og árið 1999 var hann í 2. sæti á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og var kosinn þingmaður það kjörtímabil, til vors 2003. Hann hafði áður verið varaþingmaður tvívegis og tvisvar sinnum síðar tók hann sæti varamanns. Hann sat á níu þingum alls.

Árni Steinar var einn af varaforsetum Alþingis meðan hann átti hér fast sæti og var þar dugmikill, vel látinn og mikill mannasættir. Fyrir vikið varð hann vinmargur og skipti þá engu hvort í hlut áttu pólitískir samherjar eða andstæðingar.

Árni Steinar Jóhannsson verður þeim sem með honum störfuðu á Alþingi, svo og öðrum sem honum kynntust, minnisstæður fyrir það hve hreinskiptinn hann var, glaðlyndur og gamansamur en jafnframt skyldurækinn, vandvirkur fagmaður og metnaðarfullur við störf sín. Hann hafði græna fingur og vann brautryðjendastörf í umhverfismálum víða um land. Hann naut vinsælda hvar sem hann starfaði fyrir einlægni sína, þekkingu og áhuga á verkefnum sínum og skilur eftir í hugum samferðamanna hugljúfa mynd af drengskaparmanni.

Ég bið hv. alþingismenn að minnast Árna Steinars Jóhannssonar, fyrrverandi alþingismanns, með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]