145. löggjafarþing — 27. fundur, 3. nóv. 2015.
tekjuskattur o.fl.
172. mál
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður og ég erum örugglega sammála um að aflétta þarf höftum sem fyrst og það þarf að aflétta þeim öllum í einu lagi, að mínu mati í öllu falli. Ég hef orð seðlabankastjóra fyrir því að það yrði skilyrði fyrir því að aflétta höftum fljótlega á næsta ári og ég fyrir mitt leyti mun halda ríkisstjórninni við efnið í þeim efnum og vænti góðs samstarfs við hv. þingmann að því leyti.