145. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2015.

varamaður tekur þingsæti.

[13:31]
Horfa

Forseti (Kristján L. Möller):

Borist hefur bréf frá 8. þm. Norðvest., Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, um að hún geti ekki gegnt þingmennsku á næstunni. Í gær tók því sæti á Alþingi, eins og tilkynnt var á vef Alþingis, 1. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu, Lárus Ástmar Hannesson.

Kjörbréf Lárusar Ástmars Hannessonar hefur þegar verið rannsakað og samþykkt, en hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Lárus Ástmar Hannesson, 8. þm. Norðvest., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]