145. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2015.

störf þingsins.

[15:29]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Viðbrögð við ræðu minni hér fyrir skömmu um bankaskítafýluna voru mikil og þung — (ÖS: Frá mér.) hjá öllum, alls staðar í þjóðfélaginu. Það hefur komið fram að þrátt fyrir að bankastjóri Arion banka hafi gagnrýnt mig fyrir ummæli mín hefur hann nú viðurkennt að þeir hafi gert mistök í bankanum. Hjá Símanum eru þau mistök hins vegar ekki viðurkennd. Þar virðist skítastuðullinn vera kominn upp í rjáfur eins og var hérna fyrir kreppu. Þar ætla menn ekki að skila illa fengnum ránsfeng eins og þjófarnir eru tregir til.

Ég segi það við ykkur, kæru vinir hér í þessum sal, og ég segi það við þjóðina: Við þurfum þjóðarsókn gegn spillingu í bankakerfinu og í atvinnulífinu. Það er alger hörmung að horfa upp á þetta. Fólk er gáttað yfir þessu og ég hvet til þess að hið háa Alþingi hætti viðskiptum við fyrirtæki eins og Símann. Það ætla ég að gera og ég hvet þjóðina til að segja upp viðskiptum við þetta fyrirtæki. Við eigum að sýna samstöðu og standa saman. Við viljum ekki svona viðskipti á Íslandi. Við fengum nóg af því í kreppunni og við viljum ekki sjá þetta.

Það ríkir ófriður í samfélaginu út af þessu og það er okkar að taka á svona málum, setja reglur í þessum sal um að svona viðskipti geti ekki átt sér stað í samfélaginu sem misbjóða fólki dag eftir dag.


Efnisorð er vísa í ræðuna