145. löggjafarþing — 35. fundur,  17. nóv. 2015.

ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 143/2015 um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn.

187. mál
[18:32]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Hanna Birna Kristjánsdóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti utanríkismálanefndar um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 143/2015, um breytingu á II. viðauka sem felur í sér tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun við EES-samninginn.

Nefndin hefur eins og í öðrum slíkum málum fjallað um málið og að þessu sinni fékk hún á sinn fund Bryndísi Kjartansdóttur frá utanríkisráðuneytinu og Rúnar Guðjónsson frá innanríkisráðuneytinu.

Með tillögunni núna er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á umræddum II. viðauka við EES-samninginn frá því 1992, og til að fella inn í samninginn þrjár gerðir.

Það er í fyrsta lagi, virðulegur forseti, reglugerð Evrópuþingsins frá janúar 2013 um viðurkenningu á og markaðseftirlit með vélknúnum ökutækjum á tveimur eða þremur hjólum og fjórhjólum.

Í öðru lagi framseld reglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins frá 2014 um viðbætur við umrædda reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins að því er varðar kröfur um notkunaröryggi fyrir ökutæki vegna viðurkenningar á ökutækjum á tveimur eða þremur hjólum og fjórhjólum.

Í þriðja lagi framseld reglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins frá 2014 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins að því er varðar kröfur um smíði ökutækja og almennar kröfur vegna viðurkenningar á ökutækjum á tveimur eða þremur hjólum og fjórhjólum.

Líkt og vanalega hefur sex mánaða frestur samkvæmt EES-samningnum til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara verið veittur og var veittur til miðs desember 2015. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar þess vegna í samræmi við allar reglur og 4. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.

Meginbreytingin hvað varðar þessar gerðir og meginmarkmið felst í því að framleiðendum gefst nú sjálfum, þ.e. framleiðendum umræddra ökutækja, tækifæri til að sjá um vottun og útfyllingu skjala er varðar þessi ökutæki. Á móti kemur að verði misferlis vart skuli vera hert viðurlög við því. Ríkjum Evrópusambandsins er þar með gert að setja í eigin löggjöf viðurlög við slíkum brotum. Af þessum sökum þarf lagaheimild til að innleiða þessa gerð á Íslandi.

Framseldar reglugerðir Evrópusambandsins nr. 3/2014 og Evrópusambandsins nr. 44/2014 eru settar í samræmi við reglugerð nr. 168/2013 og til nánari útfærslu á henni. Í reglugerð nr. 3/2014 eru settar fram tæknilegar kröfur sem gerðar eru til framleiðenda ökutækja í L-flokki og aðferðir við prófun þeirra, íhluta og aðskildra tæknieininga fyrir þau, og markaðseftirlit með þeim. Í reglugerð nr. 44/2014 eru settar fram tæknilegar kröfur og aðferðir við prófun á framleiðslu ökutækja og almennar kröfur sem gerðar eru til umræddra ökutækja í L-flokki. Þar eru jafnframt settir fram staðlar fyrir tæknilega þjónustu og matsaðferðir. Ökutæki sem falla í L-flokk eru til að mynda vélhjól, pallbílar á þremur hjólum og bifreiðar á fjórum hjólum sem eru innan við 400 kg að þyngd. Þyngd rafknúins ökutækis miðast við eigin þyngd án rafgeymis og þríhjóla ökutæki sem ekki fara hraðar en sem nemur 45 km/klst.

Virðulegur forseti. Innleiðing reglugerðar nr. 168/2013 hér á landi kallar á breytingu á umferðarlögum nr. 50/1987, með síðari breytingum, vegna ákveðinna sektarákvæða sem koma fram í 76. gr. gerðarinnar. Þar sem framseldar reglugerðir nr. 3/2014 og nr. 44/2014 eru nánari útfærsla á fyrstnefndu reglugerðinni er lagastoð til innleiðingar þeirra ekki heldur fyrir hendi.

Þannig er gert er ráð fyrir því að innanríkisráðherra leggi fram frumvarp til breytinga á fyrrgreindum lögum á yfirstandandi þingi. Áhrif af innleiðingu gerðanna hér á landi eru aðeins óbein þar sem þær gerðir ökutækja sem gerðirnar taka til eru ekki framleiddar hér á landi.

Nefndin leggur því til að tillagan verði samþykkt.

Undir nefndarálitið rita Hanna Birna Kristjánsdóttir, formaður utanríkismálanefndar, Vilhjálmur Bjarnason, Karl Garðarsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Frosti Sigurjónsson og Björn Valur Gíslason.