145. löggjafarþing — 39. fundur,  24. nóv. 2015.

viðvera utanríkisráðherra við umræðu um ÞSSÍ.

[15:37]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P):

Forseti. Mig langar að benda forseta á að flugvél sú sem hæstv. utanríkisráðherra er að koma með frá Brussel er lent. Hún er eilítið sein. Hún lenti kl. 15.23 samkvæmt vef Keflavíkurflugvallar. Utanríkisráðherra ætti væntanlega að geta verið kominn hingað klukkan fjögur, þannig að ég legg til og mæli með að við frestum þessum fundi til fjögur eða þangað til okkar ástkæri hæstv. utanríkisráðherra sér sér fært að koma og taka þátt í andsvörum.